Kreditkort

Aðeins 10,95% vextir á greiðsludreifingu

S24 kreditkortið er eitt það hagstæðasta á markaðinum. Það býður m.a. upp á lægra árgjald, hagstæðari greiðsludreifingu, ferðaávísun, fullar ferðatryggingar o.m.fl.

Sækja um

Nánar

Af hverju betri vextir?

Viðskiptavinir S24 afgreiða sig að mestu leiti sjálfir með því að nýta sér nýjustu tækni sem í boði er hverju sinni. Með þessum hætti getur S24 boðið viðskiptavinum sínum upp á betri vaxtakjör.

Er kreditkortið hagstæðara en önnur kreditkort?

Þér gefst kostur á hagstæðara kreditkorti en gengur og gerist, með lægra árgjaldi og betri vöxtum. Kreditkort S24 henta einkar vel fyrir alla daglega notkun, auk þess sem þú getur nýtt þér hagstæða greiðsludreifingu og raðgreiðslur, allt eftir þínum þörfum.

Er greiðsludreifing hagstæðari á S24 kreditkorti en öðrum kortum?

Það getur verið mjög hentugt og þægilegt að dreifa háum reikningum á allt að 36 mánuði. Margir spá ekki í því hversu hagstæð greiðsludreifingin er og skipta þá góðir vextir miklu máli. Vextir á greiðsludreifingu kreditkorta okkar eru þeir hagstæðustu á markaðinum.

Er árgjaldið lægra en gengur og gerist?

Árgjald á S24 kreditkortinu er lægri en gengur og gerist.

Þarf að greiða vexti af kreditkortinu?

Þú greiðir enga vexti af kreditkortinu nema þegar þú nýtir þér greiðsludreifingu.

Þarf að greiða færslugjöld?

Þú greiðir engin færslugjöld af kreditkortinu.

Hvað með ferðasöfnun?

Upphæð ávísunar er tengd veltu innanlands þegar verslað er við fyrirtæki í viðskiptum við Borgun

  • Kreditkortahafar safna þá 4 krónum af hverjum 1.000 krónum
  • Gullkreditkortahafar safna þá 5 krónum af hverjum 1.000 krónum
  • Safnaðar upphæðir fyrnast á tveimur árum

Þessar fjárhæðir safnast upp og eru greiddar út árlega í ferðaávísun sem hleypur á heilum þúsundum. Er ný ávísun send út árlega í sama mánuði og árgjald korts er greitt.

Hvernig safna ég hærri ferðaávísun?

Með því að beina viðskiptum til samstarfsfyrirtækja Ferðaávísunar safnar þú meira inn á Ferðaávísun en áður. Nánar

Hvað með ferðatryggingar?

S24 kreditkortin bjóða upp á fullar ferðatryggingar sem henta vel á ferðalögum. Þjónustan felur í sér eftirfarandi:

  • Ferðatryggingar
  • Ferðaslysatrygging
  • Sjúkrakostnaðar- og ferðarofstrygging erlendis
  • Farangurstrygging
  • Neyðarþjónusta

Hvað með boðgreiðslur?

Boðgreiðslur henta vel fyrir reglulegar greiðslur eða mánaðarlegar áskriftir s.s. leikskólagjöld, fasteignagjöld, hiti, rafmagn, sími o.fl.  Þetta er einföld, þægileg og fyrirhafnarlaus leið.  Með þessum hætti verður til velta á kortinu sem nýtist í ferðaávísun. Boðgreiðslur má einnig nýta til áskriftar að reglubundnum sparnaði í bönkum og sparisjóðum.

Hentar kreditkortið vel fyrir daglega notkun?

S24 kreditkortin henta vel í alla daglega notkun, s.s. innkaup heimilisins o.fl.

Hversu háa heimild er hægt að fá?

Metið er hverju sinni hversu háa heimild án trygginga hægt er að fá.  Er þá tekið tillit til greiðslugetu umsækjanda og geta þá heildarskuldbindingar í bankakerfinu skipt máli. Umsækjandi má ekki vera í vanskilum eða á vanskila- og/eða lokanaskrá.

Greiðsluþjónusta í öðrum bönkum og sparisjóðum ætti ekki að vera nein hindrun til að nýta sér betri kjör, við einfaldlega setjum þá upphæð sem þú greiðir mánaðarlega í greiðsluþjónustuna í sjálfvirka millifærslu.

Hvernig reiknast gengi þegar verslað er erlendis með kortinu?

Úttektir erlendis eru umreiknaðar í íslenskar krónur á þeim degi sem færsla er send inn í kortakerfi útgefanda.

Hverjir eru viðskiptaskilmálar S24 Mastercard korta?

Viðskiptaskilmála Mastercard korta má skoða á vef Borgunar. Nánar

Vextir, gjaldskrá og gengisreiknir

Vextir

Vextir valdir
Innlánsvextir  
Debetkort 2,20% - 2,80%
Sparnaðarreikningur 2,20% - 3,40%
Verðtryggður sparnaðarreikningur 2,15%
Útlánsvextir  
Debetkort 10,35%
Greiðsludreifing 10,95%
Skammtímalán 10,60%
Afborgunarsamningur 10,30%
Skoða vexti nánar

Gjaldskrá

Gjaldskrá valin

Árgjald - debetkort
Árgjald - kredit- og veltukort 5.000 kr.
Árgjald - gullkredit- og gullveltukort 8.000 kr.
Árgjald - netkort 1.000 kr.
Árgjald - Netbanki 0 kr.
Færslugjöld netbanka 0 kr.
Færslugjöld debetkorta í posum 13 kr.
Lántökugjald 1,50%
Hraðbankar erlendis - hámarksúttekt
Kreditkort - 4 sinnum í mánuði 30.000 kr.
Gullkreditkort - 4 sinnum í mánuði 60.000 kr.
Skoða gjaldskrá nánar

Gengi

Gengi valið

Almennt | MasterCard