Netkort S24
Hentar vel í kreppunni
Netkort S24 er án allra ferðatrygginga og punktasöfnunar. Kortið hentar þeim sem ætla ekki að ferðast til útlanda og vilja versla á netinu eða í búðum án færslugjalda. Árgjaldið hagstæðara en gengur og gerist. Ekki er lengur ástæða til að hafa áhyggjur af öryggi þegar verslað er á netinu þar sem Netkortið er öruggara en önnur kreditkort að því leyti að það er fyrirframgreitt og þegar þú verslar á netinu þá er einungis hægt að taka út innistæðuna sem er til á kortinu.
Sækja umNánar
Er árgjaldið lægra en gengur og gerist?
Árgjaldið á Netkorti S24 er aðeins 1.000 kr (83 kr á mánuði). Kortinu fylgja engar tryggingar en það er hugsað til að versla á öruggan hátt á netinu. Þess vegna getum við boðið lægra árgjald heldur en á hefðbundnum kreditkortum.
Eru tryggingar í kortinu?
Þar sem kortið er fyrst og fremst hugsað til að versla á netinu fylgja því engar hefðbundnar ferða tryggingar. Á móti er árgjaldið miklu lægra.
Hvað með færslugjöld?
Þú greiðir engin færslugjöld af netkorti S24. Þess ber þó að geta að kostnaður er tekinn vegna hraðbankaúttekta (skotsilfurkostnaður).
Er hægt að fá heimild á Netkortið?
Þar sem Netkort S24 er fyrirframgreitt kreditkort þá er engin heimild á því. Korthafar leggja inn á kortið til að versla á netinu. Hægt er að millifæra inn á kortið í netbanka S24 undir "Greiðslur".
Hvernig er millifært á Netkortið?
Hægt er að millifæra inn á kortið í netbanka S24 undir "Greiðslur".
Er hægt að nota kortið við dagleg innkaup?
Kortið er einnig hægt að nota við dagleg innkaup svo framarlega sem það er innistæða á kortinu.
Ef þú ert að versla þér flugfargjald á netinu þá mælum við með því að þú notir S24 kredit- eða veltukort þar sem að Netkort S24 er án trygginga.
Fyrir hverja hentar Netkortið?
Netkort S24 er fyrir alla sem versla á netinu. Ef þú verslar mikið á netinu og ert að versla á síðum sem eru ekki þekktar síður er Netkort S24 tilvalið fyrir þig. Þar sem að kortið er fyrirframgreitt og án heimildar er hætta á misnotkun í lágmarki því einungis er hægt að taka út þá upphæð sem innistæða er fyrir. Netkort S24 er einnig tilvalið fyrir þá sem vilja aðgreina það sem þeir versla á netinu frá daglegri kortanotkun.
Hvernig reiknast gengi þegar verslað er erlendis með kortinu?
Úttektir erlendis eru umreiknaðar í íslenskar krónur á þeim degi sem færsla er send inn í kortakerfi útgefanda.
Hverjir eru viðskiptaskilmálar S24 Mastercard korta?
Viðskiptaskilmála Mastercard korta má skoða á vef Borgunar. Nánar
Vextir, gjaldskrá og gengisreiknir
Vextir
| Innlánsvextir | |
|---|---|
| Debetkort | 2,20% - 2,80% |
| Sparnaðarreikningur | 2,20% - 3,40% |
| Verðtryggður sparnaðarreikningur | 2,15% |
| Útlánsvextir | |
|---|---|
| Debetkort | 10,35% |
| Greiðsludreifing | 10,95% |
| Skammtímalán | 10,60% |
| Afborgunarsamningur | 10,30% |
Gjaldskrá
| Árgjald - debetkort | |
| Árgjald - kredit- og veltukort | 5.000 kr. |
| Árgjald - gullkredit- og gullveltukort | 8.000 kr. |
| Árgjald - netkort | 1.000 kr. |
| Árgjald - Netbanki | 0 kr. |
| Færslugjöld netbanka | 0 kr. |
| Færslugjöld debetkorta í posum | 13 kr. |
| Lántökugjald | 1,50% |
| Hraðbankar erlendis - hámarksúttekt | |
| Kreditkort - 4 sinnum í mánuði | 30.000 kr. |
| Gullkreditkort - 4 sinnum í mánuði | 60.000 kr. |