Platinumkreditkort

Kreditkort
Aðeins 10,95% vextir á greiðsludreifingu

S24 Platinum kreditkortið er eitt það hagstæðasta á markaðinum. Það býður m.a. upp á lægra árgjald, hagstæða greiðsludreifingu, ferðaávísun, víðtækari ferðatryggingar, Priority Pass, Einkaklúbbskort o.m.fl. Platinum kreditkortið er ætlað þeim sem ferðast mikið og vilja mjög góðar tryggingar á ferðalögum.

Sækja um

Nánar

Af hverju betri vextir?

Viðskiptavinir S24 afgreiða sig að mestu leiti sjálfir með því að nýta sér nýjustu tækni sem í boði er hverju sinni. Með þessum hætti getur S24 boðið viðskiptavinum sínum upp á betri vaxtakjör.

Er Platinum kreditkortið hagstæðara en önnur kreditkort?

Þér gefst kostur á hagstæðara Platinum kreditkorti en gengur og gerist, með lægra árgjaldi og betri vöxtum. Platinum kreditkortið hentar einkar vel fyrir alla daglega notkun, auk þess sem þú getur nýtt þér hagstæða greiðsludreifingu og raðgreiðslur, allt eftir þínum þörfum.

Er greiðsludreifing hagstæðari á S24 Platinum kreditkorti en öðrum kortum?

Það getur verið mjög hentugt og þægilegt að dreifa háum reikningum á allt að 36 mánuði. Margir spá ekki í því hversu hagstæð greiðsludreifingin er og skipta þá góðir vextir miklu máli.

Er árgjaldið lægra en gengur og gerist?

Árgjald á Platinum kreditkortinu er lægri en gengur og gerist.

Þarf að greiða vexti af Platinum kreditkortinu?

Þú greiðir enga vexti af Platinum kreditkortinu nema þegar þú nýtir þér greiðsludreifingu.

Þarf að greiða færslugjöld?

Þú greiðir engin færslugjöld af Platinum kreditkortinu.

Hvað með ferðasöfnun?

Upphæð ávísunar er tengd veltu innanlands þegar verslað er við fyrirtæki í viðskiptum við Borgun

  • Platinum kreditkortahafar safna þá 9 krónum af hverjum 1.000 krónum
  • Safnaðar upphæðir fyrnast á tveimur árum

Þessar fjárhæðir safnast upp og eru greiddar út árlega í ferðaávísun sem hleypur á heilum þúsundum. Er ný ávísun send út árlega í sama mánuði og árgjald korts er greitt.

Hvernig safna ég hærri ferðaávísun?

Með því að beina viðskiptum til samstarfsfyrirtækja Ferðaávísunar safnar þú meira inn á Ferðaávísun en áður. Nánar

Hvað með ferðatryggingar?

S24 Platinum kreditkortið býður upp á víðtækari ferðatryggingar en gengur og gerist. Kortið hentar einkar vel á ferðalögum. Þjónustan felur í sér eftirfarandi:

  • Ferðatryggingar
  • Ferðaslysatrygging
  • Sjúkrakostnaðar- og ferðarofstrygging erlendis
  • Farangurstrygging
  • Neyðarþjónusta

Þarf að borga ferðina með Platinum kreditkortinu til þess að tryggingarnar gildi?

Það er ekki nauðsynlegt, tryggingarnar gilda samfleitt í 60 daga þó svo að ekki sé borgað með kortinu

Fylgir Platinum kortinu Priority Pass?

Já, Priority Pass aðgangskortið veitir aðgang að 450 VIP biðstofum á flugvöllum víðs vegar um heiminn

Fylgja Platinum kortinu einhver fríðindi s.s. tilboð og afslættir á veitingahúsum og verslunum?

Hverju Platinumkorti fylgir Einkaklúbbskort sem býður upp á fjölda tilboða og afslátta.

Eru einhver skilyrðu fyrir því að fá Platinum kreditkort?

Já þau eru eftirfarandi:

  • Launareikningur hjá S24
  • Góð og skilvís viðskiptasaga
  • Ekki á vanskila eða lokunarskrá
  • Útborguð laun á mánuði að lágmarki 350.000 kr.
  • Innlán eða útlán hjá S24 að lágmarki 1.000.000 kr.
  • Fasteignareigandi og markaðsvirði fasteignar að lágmarki 40.000.000 kr.

Hvað með boðgreiðslur?

Boðgreiðslur henta vel fyrir reglulegar greiðslur eða mánaðarlegar áskriftir s.s. leikskólagjöld, fasteignagjöld, hiti, rafmagn, sími o.fl.  Þetta er einföld, þægileg og fyrirhafnarlaus leið.  Með þessum hætti verður til velta á kortinu sem nýtist í ferðaávísun. Boðgreiðslur má einnig nýta til áskriftar að reglubundnum sparnaði í bönkum og sparisjóðum.

Hvað með úttektir í hraðbönkum?

Úttektir í hraðbönkum með Platinum kreditkortinu eru hærri en gengur og gerist

Hentar Platinum kreditkortið vel fyrir daglega notkun?

S24 Platinum kreditkortin henta vel í alla daglega notkun, s.s. innkaup heimilisins o.fl.

Hversu háa heimild er hægt að fá?

Metið er hverju sinni hversu háa heimild án trygginga hægt er að fá. Er þá tekið tillit til greiðslugetu umsækjanda og geta þá heildarskuldbindingar í bankakerfinu skipt máli. Umsækjandi má ekki vera í vanskilum eða á vanskila- og/eða lokanaskrá.

Greiðsluþjónusta í öðrum bönkum og sparisjóðum ætti ekki að vera nein hindrun til að nýta sér betri kjör, við einfaldlega setjum þá upphæð sem þú greiðir mánaðarlega í greiðsluþjónustuna í sjálfvirka millifærslu.

Hvernig reiknast gengi þegar verslað er erlendis með kortinu?

Úttektir erlendis eru umreiknaðar í íslenskar krónur á þeim degi sem færsla er send inn í kortakerfi útgefanda.

Hverjir eru viðskiptaskilmálar S24 Mastercard korta?

Viðskiptaskilmála Mastercard korta má skoða á vef Borgunar. Nánar

Vextir, gjaldskrá og gengisreiknir

Vextir

Vextir valdir
Innlánsvextir  
Debetkort 2,20% - 2,80%
Sparnaðarreikningur 2,20% - 3,40%
Verðtryggður sparnaðarreikningur 2,15%
Útlánsvextir  
Debetkort 10,35%
Greiðsludreifing 10,95%
Skammtímalán 10,60%
Afborgunarsamningur 10,30%
Skoða vexti nánar

Gjaldskrá

Gjaldskrá valin

Árgjald - debetkort
Árgjald - kredit- og veltukort 5.000 kr.
Árgjald - gullkredit- og gullveltukort 8.000 kr.
Árgjald - netkort 1.000 kr.
Árgjald - Netbanki 0 kr.
Færslugjöld netbanka 0 kr.
Færslugjöld debetkorta í posum 13 kr.
Lántökugjald 1,50%
Hraðbankar erlendis - hámarksúttekt
Kreditkort - 4 sinnum í mánuði 30.000 kr.
Gullkreditkort - 4 sinnum í mánuði 60.000 kr.
Skoða gjaldskrá nánar

Gengi

Gengi valið

Almennt | MasterCard