Veltukort
Aðeins 10,95% vextir og þú ræður greiðslunni
Með veltukorti S24 ræður þú hversu mikið þú greiðir á mánuði, afganginum er svo hægt að velta yfir á næstu mánuði. Hentar vel fyrir þá sem vilja þægilega greiðslubyrði, auk þess sem vextir eru mjög hagstæðir.
Sækja umNánar
Af hverju betri vextir?
Viðskiptavinir S24 afgreiða sig að mestu leiti sjálfir með því að nýta sér nýjustu tækni sem í boði er hverju sinni. Með þessum hætti getur S24 boðið viðskiptavinum sínum upp á betri vaxtakjör.
Skipta vextir á veltukorti einhverju máli?
Vextir á veltukorti S24 eru mjög hagstæðir. Vextir skipta miklu máli þegar greiðslunni er velt áfram yfir meira en eitt tímabil.
Ræð ég hversu mikið er greitt á mánuði?
Kortin eru svokölluð veltulánakort þ.e. viðskiptavinurinn getur ráðið hve mikið hann vill greiða af úttekt sinni eftir hvert úttektartímabil, þó að lágmarki 5% eða 5.000 kr. auk vaxta.
Segjum að þú sért með 200.000 króna heimild á veltukortinu þínu og fullnýtir þá heimild. Þegar kemur að næstu mánaðarmótum þá áttu möguleika á að greiða að lágmarki 5% af heimildinni auk vaxta. Heildarupphæð yrði því um 10.000 kr. (200.000 * 5%) auk vaxta. Afganginum af skuldinni getur þú síðan velt yfir á næsta mánuð/næstu mánuði.
Athugið: Ef heimild er hærri en 100.000 krónur þá þarf að borga a.m.k. 5% af heildarnotkun korts annars er borgað fast lágmark 5.000 krónur.
Hvað með ferðasöfnun?
Upphæð ávísunar er tengd veltu innanlands þegar verslað er við fyrirtæki í viðskiptum við Borgun
- Veltukortahafar safna þá 4 krónum af hverjum 1.000 krónum
- Gullveltukortahafar safna þá 5 krónum af hverjum 1.000 krónum
- Safnaðar upphæðir fyrnast á tveimur árum
Hvernig get ég fengið enn meiri ferðasöfnun?
Með því að beina viðskiptum til samstarfsfyrirtækja Ferðaávísunar safnar þú meira inn á Ferðaávísun en áður. Nánar
Hvað með boðgreiðslur?
Boðgreiðslur henta vel fyrir reglulegar greiðslur eða mánaðarlegar áskriftir s.s. leikskólagjöld, fasteignagjöld, hiti, rafmagn, sími o.fl. Þetta er einföld, þægileg og fyrirhafnarlaus leið. Með þessum hætti verður til velta á kortinu sem nýtist í ferðaávísun. Boðgreiðslur má einnig nýta til áskriftar að reglubundnum sparnaði í bönkum og sparisjóðum.
Hvað með tryggingar á ferðalögum?
Tryggingar gilda bæði innan- og utanlands óháð fjölda ferðalaga.
Er boðið upp á neyðarþjónustu um allan heim?
Neyðarþjónusta er starfrækt um allan heim og er opin allan sólarhringinn. Þar er veitt margvísleg neyðarþjónusta, s.s. læknishjálp, peningaaðstoð og ráðgjöf. Á veltukortunum er að finna númer sem hægt er að hringja í ef nýta þarf þessa þjónustu.
Hentar kortið fyrir daglega notkun?
S24 veltukortin henta vel í alla daglega notkun, s.s. innkaup heimilisins o.fl.
Hversu háa heimild er hægt að fá?
Metið er hverju sinni hversu háa heimild án trygginga hægt er að fá. Er þá tekið tillit til greiðslugetu umsækjanda og geta þá heildarskuldbindingar í bankakerfinu skipt máli. Umsækjandi má ekki vera í vanskilum eða á vanskila- og/eða lokanaskrá.
Hvað ef mig vantar reiðufé?
Korthafar geta tekið út reiðufé með kortinu í bönkum, sparisjóðum og hraðbönkum um allan heim.
Hver er munurinn á kreditkorti og veltukorti?
Kreditkort henta vel fyrir alla deglega notkun s.s. innkaup heimilisins. Veltukort henta hins vegar betur til kaupa á dýrari hlutum þar sem sóst er eftir þægilegri greiðslubyrði á mánuði.
Hvernig reiknast gengi þegar verslað er erlendis með kortinu?
Úttektir erlendis eru umreiknaðar í íslenskar krónur á þeim degi sem færsla er send inn í kortakerfi útgefanda.
Hverjir eru viðskiptaskilmálar S24 Mastercard korta?
Viðskiptaskilmála Mastercard korta má skoða á vef Borgunar. Nánar
Vextir, gjaldskrá og gengisreiknir
Vextir
| Innlánsvextir | |
|---|---|
| Debetkort | 2,20% - 2,80% |
| Sparnaðarreikningur | 2,20% - 3,40% |
| Verðtryggður sparnaðarreikningur | 2,15% |
| Útlánsvextir | |
|---|---|
| Debetkort | 10,35% |
| Greiðsludreifing | 10,95% |
| Skammtímalán | 10,60% |
| Afborgunarsamningur | 10,30% |
Gjaldskrá
| Árgjald - debetkort | |
| Árgjald - kredit- og veltukort | 5.000 kr. |
| Árgjald - gullkredit- og gullveltukort | 8.000 kr. |
| Árgjald - netkort | 1.000 kr. |
| Árgjald - Netbanki | 0 kr. |
| Færslugjöld netbanka | 0 kr. |
| Færslugjöld debetkorta í posum | 13 kr. |
| Lántökugjald | 1,50% |
| Hraðbankar erlendis - hámarksúttekt | |
| Kreditkort - 4 sinnum í mánuði | 30.000 kr. |
| Gullkreditkort - 4 sinnum í mánuði | 60.000 kr. |