Skammtímalán
Aðeins 10,60% vextir
S24 býður upp á hagstætt skammtímalán til allt að 8 ára. Hvort sem það er fyrir eldhúsinnréttingu, parketi, flísum, flatsjónvarpi, tölvu, græjum, hljóðfæri, heimabíói, uppþvottavél, þurrkara, framkvæmdum heima fyrir, utanlandsferð, brúðkaupi eða einhverju öðru, þitt er valið. Vextir eru óverðtryggðir og breytilegir.
Sækja umNánar
Af hverju betri vextir?
Viðskiptavinir S24 afgreiða sig að mestu leiti sjálfir með því að nýta sér nýjustu tækni sem í boði er hverju sinni. Með þessum hætti getur S24 boðið viðskiptavinum sínum upp á betri vaxtakjör.
Viltu minnka greiðslubyrðina?
S24 skammtímalánið hentar vel til að borga upp óhagstæðar skammtímaskuldir s.s. yfirdrátt, kreditkort, önnur skammtímalán o.fl. Þannig getur þú minnkað mánaðarlega greiðslubyrði.
Fyrir hverju hentar lánið?
Lánið hentar fyrir hverju sem er og má þar nefna eftirfarandi:
- Framkvæmdum heima fyrir
- Eldhúsinnréttingu
- Parketi
- Flísum
- Flatsjónvarpi
- Tölvu
- Græjum
- Hljóðfæri
- Heimabíói
- Uppþvottavél
- Þurrkara
- Utanlandsferð
- Brúðkaupi
- …eða einhverju öðru, þitt er valið
Hverjir geta sótt um skammtímalán?
- Núverandi viðskiptavinir með virkan launareikning
- Einstaklingar, 18 ára og eldri
- Einstaklingar sem eru ekki á vanskila og/eða lokunarskrá
Hversu langt lán er hægt að sækja um?
Til allt að 8 ára.
Hvenær þarf ég að byrja að borga af láninu?
Þú þarft ekki að byrja að borga af láninu fyrr en eftir 3 mánuði, þú ræður. Fyrsta greiðsla er þá einungis vaxtagreiðsla.
Er möguleiki á sveigjanlegum afborgunum af láninu?
- Þú ræður hversu lengi þú greiðir einungis vaxtagreiðslur áður en sjálf afborgunin hefst. Þetta getur verið allt frá nokkrum mánuðum upp í nokkur ár. Tími vaxtagreiðslna er samkomulagsatriði.
- Þú getur hætt að greiða hefðbundnar afborganir tímabundið og einungis greitt vaxtagreiðslur. Einnig er hægt að lengja lánið eftir þörfum. Þetta er þó háð því að lántaki, og ábyrgðarmaður ef hann er, samþykki breytinguna. Þetta getur hentað vel þegar þörf er á lægri greiðslubyrði t.d. vegna náms o.s.frv.
Þarf að leggja fram tryggingar?
Það er metið hverju sinni. Helstu tryggingar eru eftirfarandi:
- Veð í fasteign
Tekið er tillit til greiðslugetu umsækjanda og geta þá heildarskuldbindingar í bankakerfinu skipt máli. Umsækjandi má ekki vera í vanskilum eða á vanskila- og/eða lokanaskrá.
Hvaða vaxtakjör eru á lánunum?
Vextirnir miðast við vaxtatöflu hverju sinni.
Hvað með kostnað?
Kostnaður við lánið er misjafn eftir því hvort það er í formi afborgunarsamnings eða skuldabréfs. Ef um afborgunarsamning er að ræða þarf ekki að greiða stimpilgjald. Hins vegar þarf að greiða lántökugjald, auk þess sem það kostar 3.900 kr. að útbúa samninginn. Ef um skuldabréf er að ræða þá þarf að greiða stimpilgjald og lántökugjald auk þess sem það kostar 3.900 kr. að útbúa skuldabréfið. Útvegun veðbókarvottorðs kostar 1.000 kr.
Hversu langan tíma tekur að fá lánið?
Það tekur 1-2 daga að fá svar við umsókn. Hægt er að ráðstafa láninu daginn eftir að það er keypt.
Er hægt að greiða meira inn á lánið en sem nemur mánaðarlegri greiðslu? Eða greiða það upp hvenær sem er?
Já, þetta er hægt í netbanka S24, með því að senda okkur tölvupóst á s24@s24.is eða hringja í 533 2424.
Hvaða skuldbindingar við aðra banka og sparisjóði eru skoðaðar?
Yfirlit frá Reiknistofu bankanna til þess að kanna skuldbindingar umsækjanda við aðrar fjármálastofnanir, þar með taldar ábyrgðaskuldbindingar.
Hvar get ég fylgst með stöðu lánsins?
Í netbanka S24.
Vextir, gjaldskrá og gengisreiknir
Vextir
| Innlánsvextir | |
|---|---|
| Debetkort | 2,20% - 2,80% |
| Sparnaðarreikningur | 2,20% - 3,40% |
| Verðtryggður sparnaðarreikningur | 2,15% |
| Útlánsvextir | |
|---|---|
| Debetkort | 10,35% |
| Greiðsludreifing | 10,95% |
| Skammtímalán | 10,60% |
| Afborgunarsamningur | 10,30% |
Gjaldskrá
| Árgjald - debetkort | |
| Árgjald - kredit- og veltukort | 5.000 kr. |
| Árgjald - gullkredit- og gullveltukort | 8.000 kr. |
| Árgjald - netkort | 1.000 kr. |
| Árgjald - Netbanki | 0 kr. |
| Færslugjöld netbanka | 0 kr. |
| Færslugjöld debetkorta í posum | 13 kr. |
| Lántökugjald | 1,50% |
| Hraðbankar erlendis - hámarksúttekt | |
| Kreditkort - 4 sinnum í mánuði | 30.000 kr. |
| Gullkreditkort - 4 sinnum í mánuði | 60.000 kr. |