Skammtímalán

Skammtímalán
Aðeins 13,20% vextir

S24 býður upp á hagstætt skammtímalán til allt að 8 ára. Hvort sem það er fyrir eldhúsinnréttingu, parketi, flísum, flatsjónvarpi, tölvu, græjum, hljóðfæri, heimabíói, uppþvottavél, þurrkara, framkvæmdum heima fyrir, utanlandsferð, brúðkaupi eða einhverju öðru, þitt er valið. Vextir eru óverðtryggðir og breytilegir.

Sækja um

Niðurgreiðsla lána

Nú getur þú með einföldum hætti greitt lán niður í Netbanka S24.

Hverjir eru helstu kostir þess að greiða inn á lán?

  • Þú lækkar höfuðstól lánsins
  • Þú getur lækkað heildarendurgreiðslu lánsins
  • Þú lækkar kostnað vegna vaxta og verðbóta
  • Þú getur stytt lánstíma lánsins og lækkað greiðslubyrði til framtíðar
  • Þú getur sparað umtalsverðar fjárhæðir og má því segja að niðurgreiðsla lána geti að mörgu leiti verið lögð að jöfnu við hagkvæman sparnað
  • Þú getur greitt sömu upphæð mánarlega eða stakar greiðslur
  • Þú greiðir ekkert uppgreiðslugjald af lánum hjá S24
  • Þú getur greitt inn á lánið þitt með einfaldri aðgerð í netbankanum

Fyrir hverja er niðurgreiðsla lána?

Niðurgreiðsla lána er fyrir fólk sem er með lán hjá S24 og/eða Íbúðalánasjóði og vill greiða það niður.

Hvar er hægt að greiða inn á lán?

Það er gert í Netbanka S24 undir liðnum „Greiðslur“ vinstra megin í valmyndinni. Þar er „Niðurgreiðsla lána“ valið.

Greiða inn á lán.

Er einhver kostnaður sem fylgir því að greiða inn á lán?

Ekkert þjónustugjald er tekið fyrir niðurgreiðslu lána í netbankanum.

Hvað með uppgreiðslugjöld?

S24 tekur engin uppgreiðslugjöld þegar lán eru greidd upp.

Er hægt að greiða hvenær sem er inn á lán?

Já, ef búið er að greiða ógreiddan gjalddaga er hægt að greiða inn á lánið. Hinsvegar er mikilvægt að hafa í huga að best er að greiða inn á lánið á gjalddaga eða sem næst eftir gjalddaga. Þannig fer mest inn á höfuðstól lánsins.

Hvernig er hægt að stytta lánstíma og minnka heildarendurgreiðslu?

Með því að leggja inn á höfuðstól láns er hægt að minnka heildarendurgreiðslu. Það fer eftir því hversu mikið þú leggur inn á lánið hversu mikið þú getur lækkað heildarendurgeiðslu og stytt lánstíma. Fer einnig eftir lánstíma lánsins.

Er hægt að reikna út hversu mikið ég hagnast á því að greiða inn á lán?

Já, þú getur reiknað út hversu mikið þú hagnast með því að nota reiknivél okkar fyrir niðurgreiðslu lána.

Reikna ávinning þess að greiða inn á afborgunarsamning.

Reikna ávinning þess að greiða inn á skammtímalán.

Reikna ávinning þess að greiða inn á langtímalán.

ATH! Til að reikna út ávinning þess að greiða inn á lán hjá Íbúðalánasjóði þarftu að fara inn í Netbanka S24

Reikna ávinning þess að greiða inn á íbúðalán

Vextir, gjaldskrá og gengisreiknir

Vextir

Vextir valdir
Innlánsvextir  
Debetkort 3,70% - 5,00%
Sparnaðarreikningur 3,70% - 5,85%
Verðtryggður sparnaðarreikningur 3,45%
Útlánsvextir  
Debetkort 11,60%
Gullveltukort 13,10%
Greiðsludreifing 13,10%
Skammtímalán 13,20%
Afborgunarsamningur 11,60%
Langtímalán
Áhvílandi 0-30% 10,20%
Áhvílandi 31-60% 10,55%
Áhvílandi 61% og hærra 11,55%
Skoða vexti nánar

Gjaldskrá

Gjaldskrá valin

Árgjald - debetkort 450 kr.
Árgjald - kredit- og veltukort 5.000 kr.
Árgjald - gullkredit- og gullveltukort 8.000 kr.
Árgjald - netkort 1.000 kr.
Árgjald - Netbanki 0 kr.
Færslugjöld netbanka 0 kr.
Færslugjöld debetkorta í posum 13 kr.
Lántökugjald 1,50%
Hraðbankar erlendis - hámarksúttekt
Kreditkort - 4 sinnum í mánuði 30.000 kr.
Gullkreditkort - 4 sinnum í mánuði 60.000 kr.
Skoða gjaldskrá nánar

Gengi

Gengi valið

Almennt | MasterCard