Sparnaðarreikningur
Allt að 3,30% vextir
S24 býður frábæra innlánsvexti fyrir einstaklinga á óverðtryggðum óbundnum sparnaðarreikningum. Það er einfalt, þægilegt og þér að kostnaðarlausu að byrja að spara hjá S24.
Sækja umNánar
Af hverju betri vextir?
Viðskiptavinir S24 afgreiða sig að mestu leiti sjálfir með því að nýta sér nýjustu tækni sem í boði er hverju sinni. Með þessum hætti getur S24 boðið viðskiptavinum sínum upp á betri vaxtakjör.
Er sparnaðarreikningurinn bundinn?
Innstæða á sparnaðarreikningi S24 er laus til úttektar hvenær sem þér hentar.
Þarf að leggja inn einhverja lágmarksupphæð?
Til þess að njóta betri kjara, þarftu ekki að leggja neina lágmarksupphæð inn á reikninginn.
Hvað með kostnað?
Ekkert kostar að stofna sparnaðarreikning S24.
Þarf að greiða úttektarþóknun?
Það kostar ekkert að taka út af sparnaðarreikningi S24.
Hvað með örugga ávöxtun?
Sparnaðarreikningur S24 er óverðtryggður reikningur sem býður upp á mjög örugga ávöxtun.
Hvernig reiknast vextirnir?
Peningarnir vaxa dag frá degi því vextir reiknast daglega á innstæðu. Vextirnir eru þrepaskiptir og miðast þrepin við innistæðu reiknings á hverjum tíma. Ef að innistæða er undir 1.000.000 reiknast vextir af allri upphæðinni miðað við fyrsta vaxtaþrep. Ef að innistæða er á bilinu 1.000.000 - 4.999.999 reiknast vextir miðað við annað vaxtaþrep af allri innistæðunni. Ef að innistæða er á bilinu 5.000.000-39.999.999 reiknast vextir miðað við þriðja vaxtaþrep af allri innistæðunni. Ef innistæða er yfir 40.000.000 reiknast vextir miðað við fjórða vaxtaþrep af allri innistæðunni. Vextirnir eru síðan færðir inn á reikninginn um hver áramót.
Er hægt að fara í reglulegan sparnað?
Það getur verið auðvelt að spara. Það þarf ekki alltaf að leggja inn stórar upphæðir til að fá góða ávöxtun. Reglulegur sparnaður er einfaldur og skynsamlegur kostur. Eins og máltækið segir þá gerir "margt smátt eitt stórt".
Hvar get ég fylgst með stöðu sparnaðarreikningsins?
Í netbanka S24.
Vextir, gjaldskrá og gengisreiknir
Vextir
| Innlánsvextir | |
|---|---|
| Debetkort | 2,20% - 2,80% |
| Sparnaðarreikningur | 2,20% - 3,40% |
| Verðtryggður sparnaðarreikningur | 2,15% |
| Útlánsvextir | |
|---|---|
| Debetkort | 10,35% |
| Greiðsludreifing | 10,95% |
| Skammtímalán | 10,60% |
| Afborgunarsamningur | 10,30% |
Gjaldskrá
| Árgjald - debetkort | |
| Árgjald - kredit- og veltukort | 5.000 kr. |
| Árgjald - gullkredit- og gullveltukort | 8.000 kr. |
| Árgjald - netkort | 1.000 kr. |
| Árgjald - Netbanki | 0 kr. |
| Færslugjöld netbanka | 0 kr. |
| Færslugjöld debetkorta í posum | 13 kr. |
| Lántökugjald | 1,50% |
| Hraðbankar erlendis - hámarksúttekt | |
| Kreditkort - 4 sinnum í mánuði | 30.000 kr. |
| Gullkreditkort - 4 sinnum í mánuði | 60.000 kr. |