Sparnaður fyrir börn
Betri innlánsvextir
Sparnaður fyrir börn er tilvalin gjöf fyrir börnin, barnabörnin, vini og ættingja. Leggðu góðan grunn að framtíð ungu kynslóðarinnar með sparnaði hjá S24. Þú stofnar reikning, færð reikningsnúmerið sent í tölvupósti og getur lagt inná hann í gegnum netbanka eða í næsta bankaútibúi. Einungis foreldri eða forráðamaður getur verið skráður með aukanafn á reikningnum. Í boði eru tveir góðir sparnaðarreikningar, annars vegar verðtryggður sparnaður og hins vegar óverðtryggður sparnaður.
Hér getur þú sótt um þann sparnað sem hentar best.
Nánar
Af hverju betri vextir?
Viðskiptavinir S24 afgreiða sig að mestu leiti sjálfir með því að nýta sér nýjustu tækni sem í boði er hverju sinni. Með þessum hætti getur S24 boðið viðskiptavinum sínum upp á betri vaxtakjör.
Er sparnaðurinn bundinn?
Innstæða á óverðtryggðum sparnaði fyrir börn er laus til úttektar hvenær sem þér hentar. Verðtryggður sparnaður er hins vegar samkvæmt lögum bundinn í 36 mánuði.
Þarf að leggja inn einhverja lágmarksupphæð?
Til þess að njóta betri kjara, þarftu ekki að leggja neina lágmarksupphæð inn á sparnaðinn.
Hvað með kostnað?
Ekkert kostar að stofna sparnað fyrir börn.
Þarf að greiða úttektarþóknun?
Það kostar ekkert að taka út af óverðtryggðum sparnaði fyrir börn. Hins vegar er ekki hægt að taka út af verðtryggðum sparnaði fyrr en að binditíma loknum.
Hvað með örugga ávöxtun?
Sparnaður fyrir börn býður upp á mjög örugga ávöxtun.
Hentar reikningurinn sem gjöf?
Sparnaður fyrir börn er tilvalin gjöf fyrir börnin, barnabörnin, vini og ættingja. Leggðu góðan grunn að framtíð ungu kynslóðarinnar með sparnaði hjá S24.
Hvað geri ég ef ég vil gefa einhverjum nýjan sparnaðarreikning með innistæðu?
Þá stofnarðu reikning, færð reikningsnúmerið sent í tölvupósti og getur lagt inná hann í gegnum netbanka eða í næsta bankaútibúi. Einungis foreldri eða forráðamaður getur verið skráður með aukanafn á reikningnum.
Hvernig reiknast vextir á óverðtryggðum sparnaði?
Peningarnir vaxa dag frá degi því vextir reiknast daglega á innstæðu. Vextirnir eru þrepaskiptir og miðast þrepin við innistæðu reiknings á hverjum tíma. Ef að innistæða er undir 1.000.000 reiknast vextir af allri upphæðinni miðað við fyrsta vaxtaþrep. Ef að innistæða er á bilinu 1.000.000 - 4.999.999 reiknast vextir miðað við annað vaxtaþrep af allri innistæðunni. Ef að innistæða er á bilinu 5.000.000-39.999.999 reiknast vextir miðað við þriðja vaxtaþrep af allri innistæðunni. Ef innistæða er yfir 40.000.000 reiknast vextir miðað við fjórða vaxtaþrep af allri innistæðunni. Vextirnir eru síðan færðir inn á reikninginn um hver áramót.
Fyrir hverju á að spara?
- Fyrir námi
- Fyrir sjónvarpi
- Fyrir tölvu
- Fyrir utanlandsferð
- Fyrir fermingunni
- Fyrir bílprófi
- Fyrir bíl
- Fyrir íbúð
- Til að njóta þess síðar meir
- O.fl. o.fl
Er hægt að fara í reglulegan sparnað?
Það getur verið auðvelt að spara. Það þarf ekki alltaf að leggja inn stórar upphæðir til að fá góða ávöxtun. Reglulegur sparnaður er einfaldur og skynsamlegur kostur. Eins og máltækið segir þá gerir "margt smátt eitt stórt.
Afhverju að spara?
Það getur verið auðvelt að spara. Sú upphæð sem þú vilt spara er millifærð sjálfkrafa inn á sparnaðinn mánaðarlega. Það þarf ekki alltaf að leggja inn stórar upphæðir til að fá góða ávöxtun. Eins og máltækið segir þá gerir "margt smátt eitt stórt".
Hvað með stofnskírteini?
S24 býður ekki uppá prentuð stofnskírteini. Ef þú vilt hins vegar staðfestingu á innlegginu getur þú prentað færsluna út úr netbankanum eða notast við kvittun frá gjaldkera.
Vextir, gjaldskrá og gengisreiknir
Vextir
| Innlánsvextir | |
|---|---|
| Debitkort | 3,70% - 5,00% |
| Sparnaðarreikningur | 3,70% - 5,85% |
| Verðtryggður sparnaðarreikningur | 3,45% |
| Útlánsvextir | |
|---|---|
| Debetkort | 11,60% |
| Gullveltukort | 13,10% |
| Greiðsludreifing | 13,10% |
| Skammtímalán | 13,20% |
| Afborgunarsamningur | 11,60% |
| Langtímalán | |
| Áhvílandi 0 - 30% | 10,20% |
| Áhvílandi 31 - 60% | 10,55% |
| Áhvílandi 60% og hærra | 11,55% |
Gjaldskrá
| Árgjald - debetkort | 450 kr. |
| Árgjald - kredit- og veltukort | 5.000 kr. |
| Árgjald - gullkredit- og gullveltukort | 8.000 kr. |
| Árgjald - netkort | 1.000 kr. |
| Árgjald - Netbanki | 0 kr. |
| Færslugjöld netbanka | 0 kr. |
| Færslugjöld debetkorta í posum | 13 kr. |
| Lántökugjald | 1,50% |
| Hraðbankar erlendis - hámarksúttekt | |
| Kreditkort - 4 sinnum í mánuði | 30.000 kr. |
| Gullkreditkort - 4 sinnum í mánuði | 60.000 kr. |