Verðtryggður sparnaðarreikningur
2,15% verðtryggðir innlánsvextir
S24 býður upp á verðtryggðan sparnaðarreikning með mjög góðum innlánsvöxtum. Reikningurinn er bundinn í 36 mánuði og hentar vel fyrir langtímasparnað.
Sækja umNánar
Af hverju betri vextir?
Viðskiptavinir S24 afgreiða sig að mestu leiti sjálfir með því að nýta sér sjálfafgreiðslu sem í boði er hverju sinni. Með þessum hætti getur S24 boðið viðskiptavinum sínum upp á betri vaxtakjör.
Er verðtyggði sparnaðarreikningurinn bundinn?
Samkvæmt lögum um vexti og verðtryggingu nr. 38 frá 1. maí 2001 er hann bundinn í 36 mánuði. Binditími miðast við hvert innlegg. Að binditíma loknum er reikningur laus í 1 mánuð og bindist svo aftur í 5 mánuði, þ.e. hann er laus á 6 mánað fresti eftir að binditíma hefur verið náð. Ef tekið er út af reikninginum þá reiknast sérstakar verðbætur á hreyfða innstæðu þann mánuðinn. Vextir eru alltaf lausir eftir að greiddur hefur verið fjármagnstekjuskattur af vöxtum og verðbótum.
Eru verðbætur lausar um áramót?
Nei verðbætur eru bundnar í þrjú ár eins og innistæðan. Einungis vextir eru lausir um hver áramót eftir að fjármagnstekjuskattur hefur verið greiddur af vöxtum og verðbótum.
Hvernig reiknast vextir?
Vextir af verðtryggðum reikningum eru reiknaðir um hver mánaðamót af lægstu innstæðu reiknings fyrir liðinn mánuð.
Verðbætur reiknast á tvennan hátt. Inn- og útborganir eru verðbættar innan mánaðar með sérstökum verðbótum. Um mánaðamót reiknast verðbætur skv. neysluvísitölu á lægstu innstæðu reikningsins í síðasta almanaksmánuði. Reiknaðar verðbætur leggjast við höfuðstól um mánaðamót.
Er hægt að taka út af reikningnum hvenær sem er?
Samkvæmt lögum um vexti og verðtryggingu nr. 38 frá 1. maí 2001 þá er hvert innlegg bundið í 36 mánuði. Þess vegna ekki hægt að taka út af honum fyrr en að þeim tíma liðnum.
Er hægt að eyðileggja reikninginn?
Samkvæmt lögum er það ekki hægt fyrr en að binditíma loknum.
Hvað er verðtrygging?
Verðtrygging er heiti á sérstökum, breytilegum vöxtum, sem notaðar eru til að tryggja verðgildi fjárskuldbindinga, bankainnistæða, lána o.s.frv. með viðmiðun við ákveðna vísitölu. Verðtrygging miðast við vístölu neysluverðs og reiknast verðbætur í hlutfalli við mánaðarlegar breytingar á henni.
Þarf að leggja inn einhverja lágmarksupphæð?
Til þess að njóta betri kjara, þarftu ekki að leggja neina lágmarksupphæð inn á reikninginn.
Hvað með örugga ávöxtun?
Sparnaðarreikningur S24 er verðtryggður reikningur sem býður upp á mjög örugga ávöxtun.
Er hægt að vera með reglulegan sparnað?
Já, það er hægt að vera með reglulegan sparnað. Það þarf ekki alltaf að leggja inn stórar upphæðir til að fá góða ávöxtun. Reglulegur sparnaður er einfaldur og skynsamlegur kostur. Eins og máltækið segir þá gerir "margt smátt eitt stórt".
Hvar get ég fylgst með stöðu sparnaðarreikningsins?
Í netbanka S24.
Vextir, gjaldskrá og gengisreiknir
Vextir
| Innlánsvextir | |
|---|---|
| Debetkort | 2,20% - 2,80% |
| Sparnaðarreikningur | 2,20% - 3,40% |
| Verðtryggður sparnaðarreikningur | 2,15% |
| Útlánsvextir | |
|---|---|
| Debetkort | 10,35% |
| Greiðsludreifing | 10,95% |
| Skammtímalán | 10,60% |
| Afborgunarsamningur | 10,30% |
Gjaldskrá
| Árgjald - debetkort | |
| Árgjald - kredit- og veltukort | 5.000 kr. |
| Árgjald - gullkredit- og gullveltukort | 8.000 kr. |
| Árgjald - netkort | 1.000 kr. |
| Árgjald - Netbanki | 0 kr. |
| Færslugjöld netbanka | 0 kr. |
| Færslugjöld debetkorta í posum | 13 kr. |
| Lántökugjald | 1,50% |
| Hraðbankar erlendis - hámarksúttekt | |
| Kreditkort - 4 sinnum í mánuði | 30.000 kr. |
| Gullkreditkort - 4 sinnum í mánuði | 60.000 kr. |