Netbanki S24
Njóttu betri kjara með því að afgreiða þig sjálf/ur
Netbanki S24 er mjög þægilegur og einfaldur í notkun. Auk þess sem þú nýtur betri kjara með því að afgreiða þig sjálf/ur.
Athugið að vegna öryggisástæðna þarf að koma í afgreiðlsu S24, Digranesvegi 1 Kópavogi, til þess að fá aðgang að Netbanka S24. Þeir sem búa fyrir utan höfuðborgarsvæðið fá aðganginn hins vegar sendan í ábyrgðarpósti og er hægt að óska eftir aðgangi með því að senda okkur fyrirspurn.
Heimilisbókhald
Hverjir eru helstu kostir sjálfvirks heimilisbókhalds í Netbanka S24?
- Birtist sjálfvirkt í netbankanum, enginn innsláttur
- Góð yfirsýn yfir fjármálin
- Getur skoðað tekjur og útgjöld
- Getur séð hvernig útgjöld flokkast eftir eyðslu
- Getur gert samanburð á milli mánaða og ára
- Einfalt að setja sér markmið
Hvar er sjálfvirka heimilisbókhaldið aðgengilegt?
Heimilisbókhaldið er hluti af Netbanka S24 og byggir á þeim rafrænu upplýsingum sem þegar eru til staðar um tekjur þínar og útgjöld. Þess vegna er heimilisbókhaldið aðeins aðgengilegt í gegnum Netbankann þinn. Aðeins þú hefur aðgang að heimilsibókhaldinu.
Hvað kostar heimilisbókhaldið mig?
Sjálfvikra heimilisbókhaldið er þér að kostnaðarlasuu og er hugsað til að veita þér betri yfirsýn yfir fjármálin.
Er heimilsibókhaldið alveg sjálfvikrt?
Í hvert sinn sem þú notar t.d. greiðslukortið þitt eða færð útborguð laun, sér þessi snjalla lausn um að færa það sjálfvirkt í heimilisbókhaldið þitt. Skilyrði er að vera með Netbanka hjá S24.
Þarf ég að hafa reynslu af bókhaldi til að nota sjálfvirka heimilisbókhaldið?
Sjálfvirka heimilisbókhaldið er einföld og notendavæn leið fyrir þig til að stjórna fjármálum heimilisins. Hugsunin á bak við það er að allir geti nýtt sér ótvíræða kosti heimilisbókhalds á faglegum grunni, án þess að hafa þekkingu eða reynslu af bókhaldi. Þessi snilldarlausn sér um að færa sjálfvirkt fyrir þig allar rafrænar færslur sem heyra undir útgjöld eða tekjur á vegum heimilisins. Það eina sem þú þarft að gera er að virkja sjálfvirka bókhaldið í heimabankanum þínum.
Getur einhver annar en ég komist í heimilisbókhaldið mitt?
Nei. Upplýsingaöryggi sjálfvirka bókhaldsins er það sama og í heimabankanum. Eingöngu þú getur skoðað bókhaldið í heimabankanum þínum, nema þú gefir maka eða öðrum tengdum aðila aðgang að reikningum þínum og/eða greiðslukortum í heimabanka með þar til gerðu skriflegu umboði (PDF skjal 1,38 MB). Í þeim tilfellum getur sá aðili skoðað bókhaldið að því gefnu að viðkomandi sé með netbanka hjá S24i. Starfsfólk S24 getur ekki skoðað heimilisbókhaldið þitt.
Hvernig tengi ég reikninga/kort maka eða tengdra aðila við heimilisbókhaldið?
Til að fá aðgang að reikningum maka eða tengdra aðila þarf skriflegt umboð (PDF skjal 1,38 MB) þeirra að liggja fyrir. Reikningarnir/kortin eru því næst tengd við heimabanka þinn og eftirleiðis geturðu nálgast þá undir „Reikningar/kort“ í heimilisbókhaldi.
Er hægt að færa færslur milli tímabila?
Já, hægt er að færa stakar færslur milli tímabila. Þú getur fundið umrædda færslu, annað hvort með því að velja „Færslur“ í aðalvalmynd eða smella á „Skoða“ við þann undirflokk sem færslan tilheyrir. Smellt er á plúsinn fyrir framan umrædda færslu og þá opnast valmöguleiki sem gerir þér kleift að færa hana undir rétt tímabil. Þetta getur meðal annars verið sniðugt í þeim tilvikum þegar laun eru greidd út í lok mánaðar þegar þau í raun tilheyra mánuðinum á eftir.
Get ég sleppt því að birta færslur í bókhaldi?
Já, það er hægt með því að velja „Færslur“ í aðalvalmynd eða smella á „Skoða“ við viðeigandi undirflokk. Smellt er á plúsinn og hakað við „Eyða út færslu“. Eftir það er ekki reiknað með viðkomandi færslu í bókhaldinu en áfram verður þó hægt að sjá hana undir "Færslur".
Get ég kallað fram aftur færslu sem ég eyddi úr bókhaldi?
Já, hægt er að kalla fram færslu sem áður er búið að eyða með því að velja „Færslur“ í aðalvalmynd eða smella á „Skoða“ við þann undirflokk sem færslan birtist í. Smellt er á plúsinn fyrir framan umrædda færslu og hakið tekið af þeim valmöguleika að eyða færslunni.
Af hverju er strikað yfir sumar færslur hjá mér?
Ef strikað er yfir færslu reiknast hún ekki með í yfirliti sjálfvirka heimilisbókhaldsins. Þetta er gert, til að koma í veg fyrir að færslur á milli eigin reikninga skekki bókhaldið með því að telja tvöfalt. Þegar kreditkortareikningur er sem dæmi greiddur, má sú greiðsla ekki teljast til útgjalda þar sem allar færslur tengdar því korti hafa þegar verið taldar til útgjalda. Einungis er um að ræða yfirstrikanir á færslum milli þeirra reikninga/korta sem þú hefur valið að skoða í bókhaldinu undir „Reikningar/kort“.
Reglulegur sparnaður kemur ekki fram í útgjöldum, hver er skýringin á því?
Líklegasta skýringin á því er að þú hefur valið að birta bæði úttektarreikninginn og sparnaðarreikning í heimilisbókhaldinu. Í þeim tilvikum eru millifærslur ekki reiknaðar með í bókhaldinu, þar sem umrædd útgjöld og tekjur myndu reiknast tvöfalt inn í bókhaldið og þannig skekkja heildarmyndina. Viljir þú telja sparnaðinn með í útgjöldum er einfaldast að taka hakið af viðkomandi sparnaðarreikning undir „Reikningar/kort“ í aðalvalmynd.
Get ég fært færslur í annan flokk?
Já, það er hægt með því að velja „Breyta“ í viðeigandi undirflokki. Þar getur þú valið um að allar færslur frá viðtakanda greiðslu fari framvegis í annan undirflokk. Viljir þú hins vegar færa staka færslu frá viðtakanda í annan undirflokk smellir þú á „Skoða“. Því næst er smellt á plúsinn fyrir framan viðkomandi færslu og valinn sá undirflokkur sem þú vilt að færslan tilheyri.
Af hverju birtast sumar færslur í flokki sem tengjast þeim ekki?
Það geta verið margvíslegar ástæður fyrir því. Hvert fyrirtæki hefur einkennisnúmer sem tilgreinir um hvers konar fyrirtæki er að ræða. Það getur þó komið fyrir að fyrirtækjum sé gefið rangt númer. Einnig getur verið um fyrirtæki að ræða, sem rekur margs konar eða ólíka starfsemi og er þá oft erfitt að finna eitt númer sem lýsir allri starfseminni. Í slíkum tilvikum er gott að færa færsluna í annan undirflokk. Þú getur valið um að færa þessa einu færslu eða að færslur frá viðkomandi fyrirtæki fari framvegis í þann flokk sem á að þínu mati betur við.
Hvernig set ég mér markmið?
Til þess að setja þér markmið velur þú „Markmið“ í aðalvalmynd heimilisbókhaldsins. Þú getur valið um að lækka útgjöld um ákveðna prósentu, að hækka /lækka um ákveðna upphæð í krónum eða að slá inn þá upphæð sem þú vilt miða heildarútgjöldin þín við. Þú getur svo valið um að fá tilkynningu á tölvupósti eða SMS um hvort settu markmiði hafi verið náð. Ef þú tengir markmiðin þín við sparnað, þá millifærist alltaf ákveðin upphæð sjálfkrafa inn á sparnaðarreikning, þegar þú hefur náð markmiðum þínum.
Hvenær fæ ég tölvupóst eða SMS um það hvort ég hafi náð markmiðum mínum?
Slíkar tilkynningar eru sendar út 3. virka dag hvers mánaðar.
Ef ég tengi markmið við sparnað, hvenær fara þá millifærslur fram?
Þú getur valið hvenær millifært er í sparnað, dagsetningin verður þó að vera innan tímabilsins 4. til 20. hvers mánaðar.
Bókhaldið gefur ekki rétta mynd af stöðu minni, hver er skýringin á því?
Þarna koma helst til tvær skýringar. Laun eru t.a.m. greidd stöku sinnum tvisvar út í sama mánuði, þann fyrsta hvers mánaðar og síðasta virka dag mánaðar ef fyrsta virka dag næsta mánaðar ber upp um helgi. Það sama á við um ýmsa útgjaldaliði, þ.e. ef fyrsta virka dag mánaðar ber upp á lögbundnum frídegi eru þau stundum greidd fyrir helgi, séu þau í sjálfvirkri skuldfærslu. Til að leiðrétta þetta getur þú fært umræddar færslur á milli tímabila annað hvort með því að velja „Færslur“ í aðalvalmynd eða smella á „Skoða“ við þann undirflokk sem færslan birtist í. Smellt er á plúsinn fyrir framan umrædda færslu og opnast þá valmöguleiki um að færa hana yfir á annað tímabil.
Vextir, gjaldskrá og gengisreiknir
Vextir
| Innlánsvextir | |
|---|---|
| Debetkort | 5,10% - 6,40% |
| Sparnaðarreikningur | 5,10% - 7,25% |
| Verðtryggður sparnaðarreikningur | 4,00% |
| Útlánsvextir | |
|---|---|
| Debetkort | 12,60% |
| Gullveltukort | 13,90% |
| Greiðsludreifing | 13,90% |
| Skammtímalán | 14,00% |
| Afborgunarsamningur | 12,60% |
| Langtímalán | |
| Áhvílandi 0-30% | 11,00% |
| Áhvílandi 31-60% | 11,35% |
| Áhvílandi 61% og hærra | 12,35% |
Gjaldskrá
| Árgjald - debetkort | 450 kr. |
| Árgjald - kredit- og veltukort | 5.000 kr. |
| Árgjald - gullkredit- og gullveltukort | 7.000 kr. |
| Árgjald - netkort | 1.000 kr. |
| Árgjald - Netbanki | 0 kr. |
| Færslugjöld netbanka | 0 kr. |
| Færslugjöld debetkorta í posum | 13 kr. |
| Lántökugjald | 1,50% |
| Hraðbankar erlendis - hámarksúttekt | |
| Kreditkort - 4 sinnum í mánuði | 30.000 kr. |
| Gullkreditkort - 4 sinnum í mánuði | 60.000 kr. |