Netbanki S24

Netbanki S24
Njóttu betri kjara með því að afgreiða þig sjálf/ur

Netbanki S24 er mjög þægilegur og einfaldur í notkun. Auk þess sem þú nýtur betri kjara með því að afgreiða þig sjálf/ur.

Athugið að vegna öryggisástæðna þarf að koma í afgreiðlsu S24, Borgartúni 18 105 Reykjavík, til þess að fá aðgang að Netbanka S24. Þeir sem búa fyrir utan höfuðborgarsvæðið fá aðganginn hins vegar sendan í ábyrgðarpósti og er hægt að óska eftir aðgangi með því að senda okkur fyrirspurn.

Nánar

Hvað er hægt að gera?

Netbanki S24 býður m.a.a upp á eftirfarandi:

  • Greiða ógreidda reikninga sem birtast sjálfkrafa í netbankanum
  • Skoða stöðu reikninga og kreditkorta
  • Greiða reikninga, gíróseðla og greiðsluseðla
  • Millifæra
  • Millifæra erlendis (Senda símgreiðslur)
  • Skoða og vista færslur
  • Skoða stöðu skuldabréfa
  • Stilla sjálf/ur sína upphafssíðu
  • Skoða innlánsvexti sparnaðarreikninga
  • Fá upplýsingar um reikninga og skuldabréf fyrir skattframtal
  • Fá send SMS eða tölvupóst þegar t.d.: laun eru lögð inn eða farið er yfir á reikningi (FIT)
  • Fylgjast með gengi og þróun verðbréfa og sjóða
  • Fá yfirlit yfir stöðu námsmanna hjá LÍN (Lánasjóði Íslenskra Námsmanna
  • ... og margt fleira

Hvað þarf ég að gera til þess að fá aðgang að netbanka S24?

  • Þú þarft að vera viðskiptavinur S24
  • Þegar sótt er um kort, lán eða sparnað er hakað við hvort viðkomandi vilji aðgang að netbanka S24 eða ekki
  • Vegna öryggisástæðna þarf að koma í afgreiðlsu S24, Digranesvegi 1 Kópavogi, til þess að fá aðgang að Netbanka S24. Þeir sem búa fyrir utan höfuðborgarsvæðið fá aðganginn hins vegar sendan í ábyrgðarpósti og er hægt að óska eftir aðgangi með því að senda okkur fyrirspurn.
  • Hægt er að hringja í  533 2424 

Hvað kostar að vera með aðgang að netbanka S24?

Aðgangur að netbanka S24 er þér að kostnaðarlausu.

Hvað með öryggi?

S24 leggur mikla áherslu á að að tryggja öryggi viðskipta í gegnum netið og hafa miklar varúðarráðstafanir verið gerðar til þess að tryggja öryggi þitt á netinu. Öll samskipti við netbanka S24 eru dulrituð með 128 bita dulmálslykli frá Globalsign, svokallaðri SSL dulritun, sem er sú öflugasta sem fáanleg er í dag.

SSL dulritun, dulritar allar upplýsingar sem fara frá tölvunni þinni og kemur þannig í veg fyrir að aðrir en vefþjónn S24 geti lesið þær.

Eftir innskráningu er hægt að kanna öryggi netbankatengingarinnar. Það gerir þú með því að:

Fullvissa þig um að vefslóðin byrji á: http:// þar sem að stafurinn s stendur fyrir örugga tengingu. Einnig getur þú litið eftir hengilás neðst til hægri á síðunni. Ef að hengilásinn er lokaður er tengingin örugg.

Til að hætta eða fara út úr Netbankanum skal smella á aftengja. Til að gæta fyllsta öryggis er best að slökkva á öllum vöfrum(browser) þegar notkun Netbankans er lokið.

Ertu að nota öruggan vafra?

Athugaðu málið

Er auðkennislykilinn til þess að tryggja öryggi enn frekar?

Tryggðu þér aukna vernd í bankaviðskiptum á netinu

Auðkennislykillinn er samstarfsverkefni allra banka og sparisjóða á landinu sem miðar að því að auka öryggi við notkun banka á netinu. Auðkennislyklarnir eru einföld tæki þar sem þú getur sótt nýtt auðkennisnúmer í hvert sinn sem þú skráir þig inn í netbankann. Kerfið er í takt við nýjustu tækni og ströngustu öryggiskröfur á markaðnum og eykur öryggi við innskráningu í netbanka til muna.

Einn er nóg

Hver einstaklingur hefur sinn eigin auðkennislykil sem veitir honum aðgang að sínum reikningum í öllum bönkum og sparisjóðum. Við fyrstu innskráningu þarf að virkja auðkennislykilinn og eftir það þekkir lykillinn eiganda sinn.

Auðvelt að virkja auðkennislykilinn

Auðkennislykilinn þarf að virkja við fyrstu innskráningu. Það er aðeins gert einu sinni. Eftir það þekkir hann eiganda sinn og gefur honum hverju sinni nýtt númer til að slá inn í kjölfar hins venjulega notendanafns og lykilorðs. Þar sem númerið er síbreytilegt verður það því ekki þefað uppi af tölvuþrjótum, öryggi er því tryggt í takt við nýjustu tækni og ströngustu kröfur sem unnt er að gera. Hver og einn einstaklingur hefur sinn eigin auðkennislykil sem veitir honum aðgang að reikningum sínum í netbönkum allra sparisjóða og banka.

1. Skráðu þig inn í netbankann eins og vanalega með notendanafni og lykilorði

2. Veldu "Virkja auðkenni", lestu og samþykktu skilmála

3. Skráðu inn raðnúmer auðkennislykil (16 stafa númer aftan á auðkennislyklinum)

4. Sæktu tvö auðkennisnúmer með lyklinum og sláðu þau inn

Auðkennisnúmer sótt

Ef ýtt er á hnappinn á hlið auðkennislykilsins kemur fram auðkennisnúmer sem lifir í 45 sekúndur. Til að framkalla nýtt auðkennisnúmer þarf að halda hnappnum inni þangað til númerið hverfur og ýta síðan aftur til að framkalla nýtt auðkennisnúmer. Auðkennisnúmerið sem birtist er aldrei það sama.

Innskráning í netbankann með auðkennislyklinum

Þegar búið era ð virkja auðkennislykilinn er hann notaður við hverja innskráningu. Notkun auðkennislykilsins er lítil viðbót við innskráningu.

1. Notendanafn slegið inn

2. Lykilorð slegið inn

3. Auðkennisnúmer kallað fram

4. Auðkennisnúmer slegið inn

Vextir, gjaldskrá og gengisreiknir

Vextir

Vextir valdir
Innlánsvextir  
Debetkort 2,20% - 2,80%
Sparnaðarreikningur 2,20% - 3,40%
Verðtryggður sparnaðarreikningur 2,15%
Útlánsvextir  
Debetkort 10,35%
Greiðsludreifing 10,95%
Skammtímalán 10,60%
Afborgunarsamningur 10,30%
Skoða vexti nánar

Gjaldskrá

Gjaldskrá valin

Árgjald - debetkort
Árgjald - kredit- og veltukort 5.000 kr.
Árgjald - gullkredit- og gullveltukort 8.000 kr.
Árgjald - netkort 1.000 kr.
Árgjald - Netbanki 0 kr.
Færslugjöld netbanka 0 kr.
Færslugjöld debetkorta í posum 13 kr.
Lántökugjald 1,50%
Hraðbankar erlendis - hámarksúttekt
Kreditkort - 4 sinnum í mánuði 30.000 kr.
Gullkreditkort - 4 sinnum í mánuði 60.000 kr.
Skoða gjaldskrá nánar

Gengi

Gengi valið

Almennt | MasterCard