Netgreiðsluþjónusta
Góð yfirsýn yfir fjármálin og útgjöldin
Netgreiðsluþjónusta er þægileg leið til að halda utan um fjármálin þín. Þú útbýrð þína eigin greiðsluáætlun í Netbanka S24 og heldur utan um reikninga heimilisins á einum stað. Þú ert við stjórnvölin og getur aðlagað greiðsluáætlunina að þínum þörfum. Þú getur með þessu jafnað greiðslubyrðina yfir árið.
Nánar
Er Netgreiðsluþjónusta S24 ódýrari en hefðbundin greiðsluþjónusta banka og sparisjóða?
Já, inn og útlánsvextir á greiðslujöfnunarreikning eru betri auk þess sem ekki er greitt neitt stofngjald, mánaðargjald, endurnýjunargjald eða breytingargjald.
Af hverju að gera þetta sjálf/ur þegar ég get látið gera þetta fyrir mig í bönkum og sparisjóðum?
Netgreiðsluþjónustan er hagstæðari en hefðbundin greiðsluþjónusta banka og sparisjóða. Auk þess sem þú hefur góða yfirsýn yfir fjármálin og útgjöldin í Netbanka S24. Þetta þýðir að aðgangur að greiðsluþjónustunni er greiðari í gegnum netið heldur en í hefðbundinni greiðsluþjónustu.
Get ég skoða greiðsluþjónustuna sjálfur hvenær sem er?
Já, þú getur fylgst með henni hvenær sem er í Netbanka S24.
Get ég breytt greiðsluáætluninni sjálf/ur?
Já það er hægt að gera hvenær sem þér hentar í Netbanka S24.
Hver er munurinn á greiðsluþjónustu (Greiðsludreifing) og beingreiðslu (Beint af þínum reikning)?
Greiðsluþjónusta (Greiðsludreifing) gengur út á jafna greiðslubyrði yfir árið. Þetta er svipað fyrirkomulag og er í hefðbundinni greiðsluþjónustu í dag. Til þess að jafna greiðslubyrðina er notaður greiðslujöfnunarreikningur sem viðsiptavinur hefur ekki aðganga að. Tilgangur hans er einungis að jafna greiðslubyrðina.
Beingreiðsla (Beint af þínum reikning) er þegar greiðslur í hverjum mánuði eru greiddar út af þínum reikning jafnóðum og þær gjaldfalla. Hér er ekki stuðst við greiðslujöfnunarreikning.
Er Netgreiðsluþjónustan alveg sjálfvirk?
Netgreiðsluþjónustan er sjálfvirk en nauðsynlegt er að yfirfara hana reglulega og sjá til þess að allt sé í lagi. Ýmsar ytri ástæður geta breytt áætluninni s.s. hækkandi verðbólga, óvæntir reikningar o.s.frv.
Þarf ég aldrei að fylgjast með Netgreiðsluþjónustunni eftir að ég stofna hana?
Jú, nauðsynlegt er að yfirfara hana reglulega og sjá til þess að allt sé í lagi. Ýmsar ytri ástæður geta breytt áætluninni s.s. hækkandi verðbólga, óvæntir reikningar o.s.frv.
Hentar Netgreiðsluþjónustan til þess jafna greiðslubyrði yfir árið?
Já hún hentar mjög vel til þess. Á bak við greiðsluþjónustuna stofnast svokallaður greiðslujöfnunarreikningur með heimild sem hefur þann tilgang að jafna greiðslubyrðina. Þó skal taka fram að greiðslujöfnunarreikningurinn getur einungis jafnað greiðslubyrðina miðað við þær upplýsingar sem gefnar eru upp. Ef eitthvað breytist t.d. vegna verðbólgu eða óvæntra reikninga þarf viðksiptavinur að uppfæra greiðsluáætlunina sjálfur í Netbanka S24.
Ef ég þarf ekki á því að halda að jafna greiðslubyrðina en vil láta taka sjálfkrafa út af reikningnum mínum fyrir útgjöldum, hvað geri ég þá?
Þá velurðu lið 2 þ.e. beingreiðlsur (Beint af þínum reikning) og reikningar verða sjálfkrafa skuldfærðir af reikningi þínum mánaðarlega.
Ber ég ábyrgð á minni Netgreiðsluþjónustu sjálf/ur?
Já, þú berð sjálf/ur ábyrgð á þinni greiðsluþjónustu, að allar upplýsingar séu í lagi, uppfæra þegar breytingar eiga sér stað o.s.frv.
Fyrir hvern er Netgreiðsluþjónusta?
Netgreiðsluþjónusta hentar þeim sem eiga í bankaviðskiptum á netinu og vilja sjá sjálfir um sína eigin greiðsluþjónustu án kostnaðar.
Geta allir stofnað Netgreiðsluþjónustu?
Til að stofna netgreiðsluþjónustu þá þarftu að vera með Netbanka S24, sem hægt er að sækja um á vefnum.
Hvernig stofna ég Netgreiðsluþjónustu?
Ef þú vilt stofna Netgreiðsluþjónustu þá gerir þú það inn í Netbankanum á þægilegan og auðveldan máta. Nánari leiðbeiningar er að finna í Kennslubankanum sem er inn í Netbankanum.
Hvað kostar Netgreiðsluþjónusta?
Engin þjónustugjöld eru í Netgreiðsluþjónustu.
Er hægt að breyta greiðsluáæltun í Netgreiðsluþjónustu eftir að greiðsluáætlun er staðfest?
Já, það er hægt að breyta greiðsluáæltun án nokkurs kostnaðar.
Hvernig breyti ég greiðsluáæltun?
Þú breytir greiðsluáætlun þinni í Netbankanum.
Vextir, gjaldskrá og gengisreiknir
Vextir
| Innlánsvextir | |
|---|---|
| Debetkort | 2,20% - 2,80% |
| Sparnaðarreikningur | 2,20% - 3,40% |
| Verðtryggður sparnaðarreikningur | 2,15% |
| Útlánsvextir | |
|---|---|
| Debetkort | 10,35% |
| Greiðsludreifing | 10,95% |
| Skammtímalán | 10,60% |
| Afborgunarsamningur | 10,30% |
Gjaldskrá
| Árgjald - debetkort | |
| Árgjald - kredit- og veltukort | 5.000 kr. |
| Árgjald - gullkredit- og gullveltukort | 8.000 kr. |
| Árgjald - netkort | 1.000 kr. |
| Árgjald - Netbanki | 0 kr. |
| Færslugjöld netbanka | 0 kr. |
| Færslugjöld debetkorta í posum | 13 kr. |
| Lántökugjald | 1,50% |
| Hraðbankar erlendis - hámarksúttekt | |
| Kreditkort - 4 sinnum í mánuði | 30.000 kr. |
| Gullkreditkort - 4 sinnum í mánuði | 60.000 kr. |