Um S24
S24 var stofnað þann 14. október árið 1999. S24 er í eigu Byrs sparisjóðs. Viðskiptavinir S24 eru einstaklingar sem eru 18 ára og eldri. S24 býður þó upp á sparnað fyrir einstaklinga sem eru yngri en 18 ára. S24 býður viðskiptavinum sínum hagstæða vexti á lán og sparnað og aðgang að skilvirkri greiðslumiðlun. Viðskiptavinirnir S24 nálgast þjónustuna í gegnum, netið, síma eða í afgreiðslu S24 á Digranesvegi 1.
Stefna
Stefna S24 er að bjóða upp á hagstæða skammtíma óverðtryggða vexti og vera verðugur kostur fyrir einstaklinga sem vilja sinna bankaviðskiptum sínum í gegnum netið og síma.
Hlutverk og framtíðarsýn
S24 leggur áherslu á að viðskiptavinir hagnist í viðskiptavinum sínum og séu ánægðir með samskipti sín við fyrirtækið.
Framtíðarsýn S24 er að skila góðum hagnaði til lengri tíma auk þess að vera verðugur fjárfestingakostur. Það er gert með hæfu starfsfólki, öflugu markaðs, sölu og þróunarstarfi ásamt því að hafa alla innri ferla sem skilvirkasta og halda kostnaði og yfirbyggingu í lágmarki. S24 mun aðgreina sig með því að bjóða hagstæða vexti auk þess að hafa skilvirkari innri ferla.
Markmið
Markmið með rekstri S24 er að höfða til nýrra viðskiptavina og leggja áherslu á að halda uppi öruggu og markvissu viðskiptasambandi við viðskiptavini.
Fyrir hvað stendur vörumerkið S24
S-ið í vörumerkinu stendur fyrir sjálfsafgreiðslu í gegnum net og síma. 24 stendur fyrir allan sólarhringinn. Appelsínuguli liturinn táknar ferskleika og nýjungagirni en blái liturinn á að undirstrika traust. Slagorðið …og þú hagnast stendur fyrir staðfærslu S24 á markaðinum þ.e. hagstæða vexti. Viðskiptavinir geta treyst því að S24 býður hagstæða óverðtryggða skammtímavexti á inn- og útlánum.
Gildi
Segja má að slagorð fyrirtækisins lýsi gildum S24 vel þ.e. “…og þú hagnast”. Öll verkefni sem tekin eru fyrir ganga út á að láta viðskiptavininn hagnast t.d. með betri kjörum, skilvirkum ferlum og lítilli yfirbyggingu. Gildi S24 miða öll að því að láta viðskiptavininn hagnast á einn eða annan hátt:
Virði
Allar vörur og þjónusta sem boðið er upp á miða að því að skila viðskiptavinum auknu virði í formi betri vaxta. Hlutirnir eru hafðir eins einfaldir og mögulegt er hvort sem verið er að tala um ferla, vörur, þjónustu eða samskipti. Við viljum engar óþarfa flækjur.
Frumkvæði
Við sýnum frumkvæði í starfi og þorum að taka ákvarðanir. Sveigjanleiki, gæði, hátt þekkingarstig og gott upplýsingastreymi er haft að leiðarljósi við að veita framúrskarandi þjónustu í gegnum net og síma.
Léttleiki
Við höfum gaman í vinnunni og höfum ánægju af því að þjónusta viðskiptavininn. Góð samskipti og heiðarleiki skipta miklu máli.
Vextir, gjaldskrá og gengisreiknir
Vextir
| Innlánsvextir | |
|---|---|
| Debetkort | 5,10% - 6,40% |
| Sparnaðarreikningur | 5,10% - 7,25% |
| Verðtryggður sparnaðarreikningur | 4,00% |
| Útlánsvextir | |
|---|---|
| Debetkort | 12,60% |
| Gullveltukort | 13,90% |
| Greiðsludreifing | 13,90% |
| Skammtímalán | 14,00% |
| Afborgunarsamningur | 12,60% |
| Langtímalán | |
| Áhvílandi 0-30% | 11,00% |
| Áhvílandi 31-60% | 11,35% |
| Áhvílandi 61% og hærra | 12,35% |
Gjaldskrá
| Árgjald - debetkort | 450 kr. |
| Árgjald - kredit- og veltukort | 5.000 kr. |
| Árgjald - gullkredit- og gullveltukort | 7.000 kr. |
| Árgjald - netkort | 1.000 kr. |
| Árgjald - Netbanki | 0 kr. |
| Færslugjöld netbanka | 0 kr. |
| Færslugjöld debetkorta í posum | 13 kr. |
| Lántökugjald | 1,50% |
| Hraðbankar erlendis - hámarksúttekt | |
| Kreditkort - 4 sinnum í mánuði | 30.000 kr. |
| Gullkreditkort - 4 sinnum í mánuði | 60.000 kr. |