Aðgengismál

Vottun fyrir forgang I og II

Vefsíða S24.is www.s24.is hefur hlotið vottun (forgangur 1 og 2) frá fyrirtækinu Sjá ehf. og Öryrkjabandalaginu þess efnis að vefur S24 standist kröfur um aðgengi fyrir fatlaða. Forgangur 1 er lágmarkskrafa sem gerð er um aðgengi á vef. Forgangur 2 gerir meiri kröfur um aðgengi á vef. Vottunin nær ekki til vefsíðna sem eru á erlendum tungumálum.

  • Vefurinn er aðgengilegur öllum þeim sem nota skjálesara, sem er sérstakt tól sem blindir og sjónskertir nota.
  • Hægt er að stækka og minnka letur á vefnum.
  • Hægt er að breyta um bakgrunnslit fyrir sjónskerta og/eða lesblinda. Uppsetning á síðu helst óbreytt.
  • Hreyfihamlaðir notendur geta notað vefinn án þess að nota mús.
  • Öll nöfn á tenglum eru skýr.
  • Allar myndir hafa ALT texta.
  • Skammstafanir eru útskýrðar í þeim tilfellum þegar þær eru notaðar.
  • Viðhengi eru útskýrð, fram kemur tegund skráar.
  • Þær vefsíður sem innihalda virkni (reiknivélar og beiðnir) hafa skýrar leiðbeiningar um tilgang virkninnar.
  • Notkun PDF skjala á vefnum er stillt í hóf.
  • Vefurinn virkar án forskrifta (enska: Javascript) í meginatriðum.
  • Vefur S24 virkar í öllum helstu vefvöfrum sem notaðir eru hverju sinni.

Fyrirvari

  • Umsóknir S24 eru ekki aðgengilegar öllum notendum, en stefnt er úrbótum í þeim efnum í nánustu framtíð.

Vottun vefráðgjafarfyrirtækisins Sjá byggist á gátlistanum WAI (Web Accessibility Initiative) og hefur hann verið uppfærður miðað við nýjustu útgáfu sem er alþjóðlegur staðall fyrir aðgengi á Netinu. Sjá hefur í samvinnu við Öryrkjabandalag Íslands sniðið listann að íslenskum aðstæðum og hefur hann verið prófaður af notendum með margs konar fötlun.

Nánari upplýsingar um vefinn er hægt að fá með því að senda fyrirspurn í tölvupósti.

Vextir, gjaldskrá og gengisreiknir

Vextir

Vextir valdir
Innlánsvextir  
Debetkort 5,10% - 6,40%
Sparnaðarreikningur 5,10% - 7,25%
Verðtryggður sparnaðarreikningur 4,00%
Útlánsvextir  
Debetkort 12,60%
Gullveltukort 13,90%
Greiðsludreifing 13,90%
Skammtímalán 14,00%
Afborgunarsamningur 12,60%
Langtímalán
Áhvílandi 0-30% 11,00%
Áhvílandi 31-60% 11,35%
Áhvílandi 61% og hærra 12,35%
Skoða vexti nánar

Gjaldskrá

Gjaldskrá valin

Árgjald - debetkort 450 kr.
Árgjald - kredit- og veltukort 5.000 kr.
Árgjald - gullkredit- og gullveltukort 7.000 kr.
Árgjald - netkort 1.000 kr.
Árgjald - Netbanki 0 kr.
Færslugjöld netbanka 0 kr.
Færslugjöld debetkorta í posum 13 kr.
Lántökugjald 1,50%
Hraðbankar erlendis - hámarksúttekt
Kreditkort - 4 sinnum í mánuði 30.000 kr.
Gullkreditkort - 4 sinnum í mánuði 60.000 kr.
Skoða gjaldskrá nánar

Gengi

Gengi valið

Almennt | MasterCard