Spurt og svarað

Hvað er gott að vita um S24?

  • Vefsíða: www.s24.is
  • Sími: 533 2424
  • Faxnúmer: 550 2841
  • Netfang: s24@s24.is
  • Bankanúmer: 1113
  • Kennitala: 580899-2939
  • Heimilisfang: Borgartúni 18, 105 Reykjavík
  • Skrifstofa og afgreiðslustaður: Borgartúni 18, 2. hæð

Hvenær var S24 stofnað?

S24 hóf starfssemi sína 14. október 1999

Hver á S24?

S24 er 100% í eigu Byrs - www.byr.is

Hver er Swift code?

  • Swift code: BYRSISRE
  • Byr sparisjóður / Byr Savings Bank
  • Borgartúni 18
  • 105 Reykjavík

Hvað með lagaumhverfi?

S24 starfar eftir lögum um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 og er háð eftirliti Fjármálaeftirlitsins (FME).

S24 er 100% í eigu Byrs og heyrir undir sama eftirlit og Byr. S24 er sjálfstæð rekstrareining innan Byrs, kemur þannig fram gagnvart FME. S24 er hluti af rekstri Byrs og er tæknilega og uppgjörslega eins og útibú inni í samstæðu Byrs. S24 er ekki sjálfstæður banki. Innstæður í S24 eru 100% öruggar eins og aðrar innstæður í bankakerfinu.

Ábyrgð og áhætta í S24 er sú sama og í Byr. Viðskiptavinirnir eru jafnvel settir að vera með innlánin í S24 eins og Byr.

Hvað með meðferð persónuupplýsinga?

Í starfsemi sinni vinnur S24 með persónuupplýsingar um viðskiptavini í samræmi við lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, nr. 77/2000. S24 er það nauðsynlegt til að gegna hlutverki sínu sem fjármálafyrirtæki og tryggja viðskiptavinum sínum góða og örugga fjármálaþjónustu. Frekari upplýsingar má finna í bæklingi (Adobe Acrobat) um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga hjá fjármálafyrirtækjum.

Upplýsingarnar sem viðskiptavinur gefur upp þegar hann sækir um lán hjá S24 eru einungis notaðar í þeim tilgangi að auðvelda lánamat og flýta fyrir ákvörðunartöku varðandi afgreiðslu lánsbeiðninnar. Gögnin eru meðhöndluð samkvæmt lögum um persónuvernd og bankaleynd.

Hvað með öryggi netbanka S24?

S24 leggur mikla áherslu á að að tryggja öryggi viðskipta í gegnum netið og hafa miklar varúðarráðstafanir verið gerðar til þess að tryggja öryggi þitt á netinu. Öll samskipti við netbanka S24 eru dulrituð með 128 bita dulmálslykli frá Globalsign, svokallaðri SSL dulritun, sem er sú öflugasta sem fáanleg er í dag.

Hver eru skilyrði fyrir stofnum viðskipta við S24?

  • Viðskiptavinur S24 þarf að hafa lögheimili eða fasta búsetu á Íslandi.
  • Viðskiptavinur verður að hafa náð 18 ára aldri og vera fjárráða, þó er hægt að stofna sparnaðarreikninga fyrir einstaklinga yngri en 18 ára.
  • Viðskiptavinur verður að hafa aðgang að Netinu og hafa netfang.
  • Viðskiptavinur má ekki vera á vanskila- eða lokunarskrá, með árangurlaust fjárnám á sér eða gjaldþrot.

Af hverju betri vextir?

Viðskiptavinir S24 afgreiða sig að mestu leiti sjálfir með því að nýta sér nýjustu tækni sem í boði er hverju sinni. Með þessum hætti getur S24 boðið viðskiptavinum sínum upp á betri vaxtakjör.

Hver er afgreiðslutíminn hjá S24?

Hægt er að nýta sér netbanka og GSM banka S24 allan sólarhringinn. Símaþjónustan er opin frá kl.8:30-17:00 alla virka daga en lokuð um helgar. Afgreiðslutími afgreiðslustaðar S24 á Digranesvegi 1: Allla virka daga frá 9:00 til 16:00.

Hvaða þjónustu er boðið upp á þegar hringt er í síma 533 2424?

Í símaþjónustu S24 er hægt að:

  • Fá upplýsingar um kort
  • Fá stöðu á debetkortum, kreditkortum, veltukortum, lánum og sparnaðarreikningum
  • Millifæra
  • Sækja um heimild
  • Fá upplýsingar um netbanka S24
  • Fá upplýsingar um hvernig á að skrá sig í netbanka S24
  • Sækja um sjálfvirka skuldfærslu
  • Tilkynna glatað kort
  • ...og margt fleira!

Hvað er hægt að gera á heimasíðunni?

  • Sækja um heimild, kort, lán sparnað og tilboð
  • Senda fyrirspurnir og þjónustubeiðnir
  • Skoða vörur
  • Skoða þjónustu og þjónustuleiðir
  • Skoða tilboð
  • Reikna út greiðslubyrði láns eða hversu mikið hægt er að spara
  • ...og mikið meira

Hvað er hægt að gera í netbanka S24?

  • Greiða ógreidda reikninga sem birtast sjálfkrafa í netbankanum
  • Skoða stöðu reikninga og kreditkorta
  • Greiða reikninga, gíróseðla og greiðsluseðla
  • Millifæra
  • Millifæra erlendis (Senda símgreiðslur)
  • Skoða og vista færslur
  • Skoða stöðu skuldabréfa
  • Stilla sjálf/ur sína upphafssíðu
  • Skoða innlánsvexti sparnaðarreikninga
  • Fá upplýsingar um reikninga og skuldabréf fyrir skattframtal
  • Fá send SMS eða tölvupóst þegar t.d.: laun eru lögð inn eða farið er yfir á reikningi (FIT)
  • Fylgjast með gengi og þróun verðbréfa og sjóða
  • Fá yfirlit yfir stöðu námsmanna hjá LÍN (Lánasjóði Íslenskra Námsmanna)
  • ... og margt fleira

Hvað er í boði í afgreiðslu S24?

  • Sækja kort og PIN númer
  • Fá stöðu á debet og kreditkortum
  • Millifæra
  • Sækja um heimild
  • Fá upplýsingar um netbanka S24
  • Fá upplýsingar um hvernig á að skrá sig í netbanka S24
  • Sækja um sjálfvirka skuldfærslu
  • Sækja um beingreiðslur og boðgreiðslur
  • Tilkynna glatað kort
  • ...og margt fleira

Hverjir geta orðið viðskiptavinir S24?

Allir einstaklingar á Íslandi 18 ára og eldri sem eru ekki á vanskila og/eða lokunarskrá. S24 býður þó uppá sparnað fyrir einstaklinga sem eru yngri en 18 ára.

Hvernig gerist ég viðskiptavinur S24?

Þú sækir um á heimasíðu okkar: www.s24.is

Hvernig og hvenær get ég haft samband við S24?

  • Hægt er að nota netbanka S24 allan sólarhringinn
  • Hægt er að hringja í síma 533 2424 frá 08:30 til 17:00 alla virka daga.
  • Hægt er að senda fyrirspurnir á netfang okkar s24@s24.is allan sólarhringinn
  • Hægt er að koma í afgreiðslu S24 á Digranesvegi 1 - Afgreiðslan er opin frá kl.9:00-16:00 alla virka daga en lokuð um helgar.

Afhverju hefur S24 enga gjaldkera?

S24 nýtir sér nýjustu sjálfsafgreiðsluleiðir og getur þannig boðið viðskiptavinum sínum betri vaxtakjör.

Afhverju er ekki hægt að leggja inn peninga í afgreiðslu S24?

S24 er öðruvísi bankaþjónusta og bendum við viðskiptavinum okkar á að nota útibú annarra sparisjóða og banka til þess að leggja inn peninga.

Þarf ég að binda mig í viðskiptum til að fá svona góð vaxtakjör?

Nei þú þarft ekki að binda þig en nýtur samt frábærra vaxtakjara.

Hvert er bankanúmer S24?

1113

Hvaða vörur býður S24 uppá?

  • Debetkort
  • Kreditkort
  • Veltukort
  • Yfirdrátt / heimild
  • Skammtímalán
  • Langtímalán
  • Netbílalán
  • Sparnað
  • Lífeyrissparnað
  • Netklúbb

Hvernig get ég skráð mig í netbanka ykkar?

Um leið og þú færð kort afhent eða stofnar reikning hjá S24 þá ertu skráður í netbanka S24.  Þú getur líka fengið netbanka ef þú ert með aðrar vörur s.s. sparnað eða lán.  Þú þarft að breyta leyniorði í fyrsta skipti sem þú skráir þig inn í netbankann. Þetta er gert af öryggisástæðum.  Hægt er að sækja um aðgang að netbanka S24 hér é vefsíðunni undir “Sækja um”.

Get ég fengið gjaldeyri?

Ef þú vilt gjaldeyri þá er þér bent á að leita til annarra banka og/eða sparisjóða.

Hvað geri ég þá ef ég fer til útlanda?

S24 bendir viðskiptavinum sínum á að nota S24 kreditkortið og/eða veltukortið sitt í útlöndum. Auk þess sem hægt er að nota debetkortið í mörgum löndum.

Hvaða skilyrði þarf ábyrgðarmaður fyrir láni m.a. að uppfylla?

  • Hann þarf að vera 18 ára eða eldri og má ekki vera á vanskila og/eða lokanaskráHann má ekki vera eldri en 75 ára þegar ábyrgðin rennur úr gildi
  • Hann verður að vera fasteignareigandi

Hvernig get ég millifært erlendis frá inn á reikning hjá S24?

Þú þarft að gefa þeim banka sem sér um að millifæra fyrir þig eftirfarandi upplýsingar:

  • Swift code: BYRSISRE
  • Byr sparisjóður / Byr Savings Bank
  • Borgartúni 18
  • 105 Reykjavík
  • Iban númer (sést á reikningyfirliti eða hafa samband við okkur)
  • Nafn og kennitölu á reikningeiganda.

Hvernig get ég millifært frá mínum S24 reikningi yfir á erlendan reikning?

Þú þarft að símsenda eða senda í tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til S24:

  • Nafn og heimilisfang á banka
  • SWIFT númer á banka eða BIC númer , mismunandi eftir löndum (ATH í Bandaríkjunum heitir þetta Routing number)
  • Númer á reikningi
  • Nafn og heimilisfang reikningseiganda
  • Iban númer á reikningi (á einungis við um lönd innan evrópusambandsins)
  • Þegar upplýsingarnar hafa borist til okkar þarft þú að staðfesta við okkur leyninúmerið þitt svo hægt sé að millifæra af reikningi þínum.
  • Faxnúmer 550 2841 - Netfang: s24@s24.is

Vextir, gjaldskrá og gengisreiknir

Vextir

Vextir valdir
Innlánsvextir  
Debetkort 3,70% - 5,00%
Sparnaðarreikningur 3,70% - 5,85%
Verðtryggður sparnaðarreikningur 3,45%
Útlánsvextir  
Debetkort 11,60%
Gullveltukort 13,10%
Greiðsludreifing 13,10%
Skammtímalán 13,20%
Afborgunarsamningur 11,60%
Langtímalán
Áhvílandi 0-30% 10,20%
Áhvílandi 31-60% 10,55%
Áhvílandi 61% og hærra 11,55%
Skoða vexti nánar

Gjaldskrá

Gjaldskrá valin

Árgjald - debetkort 450 kr.
Árgjald - kredit- og veltukort 5.000 kr.
Árgjald - gullkredit- og gullveltukort 8.000 kr.
Árgjald - netkort 1.000 kr.
Árgjald - Netbanki 0 kr.
Færslugjöld netbanka 0 kr.
Færslugjöld debetkorta í posum 13 kr.
Lántökugjald 1,50%
Hraðbankar erlendis - hámarksúttekt
Kreditkort - 4 sinnum í mánuði 30.000 kr.
Gullkreditkort - 4 sinnum í mánuði 60.000 kr.
Skoða gjaldskrá nánar

Gengi

Gengi valið

Almennt | MasterCard